Önnur mál

Málsnúmer 201312028

Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 38. fundur - 05.12.2013

Fulltrúar úr Egilsstaðaskóla gerðu grein fyrir könnun sem þau gerðu innan skólans um hvað þau ættu að taka fyrir og niðurstaðan er eftirfarandi:

1. Strætó, búið að skerða þjónustuna mikið og finnst sumum að ekki sé tillit tekið til þeirra sem nýta Strætó, t.d. um helgar osfr. Þar sem meirihluti þeirra sem nýta strætó eru ungmenni og nota hann vegna íþrótta og félagsiðkunar er spurning hvort hægt væri að skoða t.d. hvenær mesta nýtingin er með tilliti til æfinga báðu megin við fljótið. Tölur hljóta að vera hjá t.d. íþróttafélögum um hve margir eru á hverjum tíma. Fá síðan þá sem nýta strætó til að búa til áætlun ásamt þeim sem hafa með skipulags- og pengingavaldið að gera.

2. Skate park. Umræðan um betri skatepark er fundarritara ekk ókunn. Það eru 3 ágætir rampar sem staðsettir hafa verið við Sláturhúsið. Þeir sem stunda brettaíþróttir hafa viljað bæta við hana aðstöðuna, búa til betra undirlag osfr.

Starfsmaður ungmennaráðs hefur bent brettaiðkendum á að sækja um styrki ofl sem eru í boði fyrir ungt fólk til að framkvæma og bæta við búnaði. Eitt árið var látið færa rampana inn en enginn kom til að hjálpa til við að setja undirlag ofl þó svo að Húsasmiðjan hafi verið klár að leggja til efni.

Frumkvæðið og framkvæmdin verður að koma frá þeim sem nýta aðstöðuna, sveitarfélagið og Sláturhúsið er tilbúið að styðja framkvæmdir osfr en það virðist vanta pínu upp á frumkvæði brettafólks. Vonum að það komi með tíð og tíma.

3. Sundlaugin
Aðstaðan, fleiri rennibrautir, gufubað, útiklefar. Óskað er eftir svörum við því hvort sundlaugin er á einhverri uppfærsluáætlun.



Næstu fundur reiknast til að vera fimmtudaginn 9. janúar.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 246. fundur - 11.12.2013

Varðandi niðurstöður úr könnun meðal nemenda Egilsstaðaskóla.

Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma niðurstöðunum til skoðunar og vinnslu hjá viðkomandi nefndum eða starfsmönnum sveitarfélagsins og svara spurningum sem fram komu varðandi sundlaugina á Egilsstöðum.
Málefnum strætó vísað til skoðunar og umsagnar hjá framkvæmda- og þjónustufulltrúa.