Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs þann 06. des. 2013 var eftirfarandi erindi tekið fyrir: Sýslumaðurinn á Seyðisfirði kt. 490169-5479, óskar eftir umsögn með erindi dag. 03.12.2013, vegna umsóknar Íslensku Kristkirkjunnar kt.431097-2739 um endurnýjun á gistileyfi í flokki II. Starfsstöðin er Eyjólfsstaðir á Héraði.
"Byggingarfulltrúi mælir með veitingu leyfisins fyrir sitt leyti. Bókun þessi var staðfest af skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs þann 11. des. 2013.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarráð staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar. Jafnframt staðfestir bæjarráð að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um."