Lögreglustjórinn á Seyðisfirði kt. 490169-5479, óskar eftir umsögn með erindi dags. 05.07.2013 vegna umsóknar Valnýjar Hebu Hauksdóttur, Kjerúlf kt.280872-3349, f.h. Café Valný ehf. kt.690306-1150, um leyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Miðvangi 2-4, Egilsstöðum, skv. meðfylgjandi afriti af umsókninni.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. Bókun þess efnis var staðfest af skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs þann 24. júlí 2013.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarráð staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefnd. Jafnframt staðfestir bæjarráð að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.