Lögreglustjórinn á Seyðisfirði kt. 490169-5479, óskar eftir umsögn með erindi í tölvupósti dags. 14.06.2013, vegna umsóknar Sigurdórs Sigvaldasonar kt.300464-2709 um endurnýjun á leyfi fyrir Café Nielsen kt.500205-0400, veitingastað í flokki III, að Tjarnarbraut 1, Egilsstöðum, Fljótsdalshéraði, skv. meðfylgjandi afriti af umsókninni.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. Bókun þess efnis var staðfest af skipulags- og mannvirkjanefndar Fljótsdalshéraðs þann 24. júlí 2013.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarráð staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar. Jafnframt staðfestir bæjarráð að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.