Lögreglustjórinn á Seyðisfirði kt. 490169-5479, óskar eftir umsögn með erindi dags. 06.06.2013 vegna umsóknar Ísaks Jóhanns Ólafssonar kt.180250-2479, f.h. Kolls ehf. kt.651188-1219, um leyfi fyrir Shellskálann á Egilsstöðum, veitingastaður í flokki II, að Fagradalsbraut 13, Egilsstöðum, skv. meðfylgjandi afriti af umsókninni.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. Bókun þess efnis var staðfest af skipulags- og bygginganefnd Fljótsdalshéraðs þann 24. júlí 2013.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarráð staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og byggingarnefndar. Jafnframt staðfestir bæjarráð að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.