Lögreglustjórinn á Seyðisfirði kt. 490169-5479, óskar eftir umsögn með erindi í tölvupósti dags. 04.07.2013, vegna umsóknar Vilborgar Vilhjálmsdóttur, kt.200142-4469 um nýtt rekstrarleyfi fyrir Gistiheimilið Randaberg Fljótsdalshéraði, gististaður í flokki I, að Randabergi Fljótsdalshéraði, skv. meðfylgjandi afriti af umsókninni.
"Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins. Bókun þess efnis var staðfest af skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs þann 24. júlí 2013.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarráð staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar. Jafnframt staðfestir bæjarráð að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um."