Leikskólinn Tjarnarskógur - skipulag skólastarfs 2013-2014

Málsnúmer 201305075

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 185. fundur - 13.05.2013

Guðný Anna Þóreyjardóttir, leikskólastjóri, kynnti tillögu að skipulagi skólastarfsins skólaárið 2013-2014. Formlegt skóladagatal verður birt á heimasíðu skólans. Gerð er tillaga um breytingu á niðurröðun barna á deildir, hingað til hefur meginreglan verið að deildir skólans séu aldurshreinar en nú er gert ráð fyrir aldursblöndun á deildum.