Skólastjóri kynnti tillögu að skóladagatali Fellaskóla fyrir skólaárið 2013-2014. Skóladagatalið hefur verið kynnt bæði meðal starfsmanna og í skólaráði. Fræðslunefnd samþykkir skóladagatalið fyrir sitt leyti. Skólastjóri kynnti stöðu í starfsmannamálum. Jón Gunnar Axelsson, aðstoðarskólastjóri verður í leyfi skólaárið 2013-2014 til að ljúka meistaranámi, Ásta María Hjaltadóttir mun leysa hann af þetta skólaár.
Skólastjóri kynnti fræðslunefnd stöðu í starfsmannamálum. Jón Gunnar Axelsson, aðstoðarskólastjóri verður í leyfi skólaárið 2013-2014 til að ljúka meistaranámi, Ásta María Hjaltadóttir mun leysa hann af þetta skólaár. Skólastjóri kynnti einnig tillögu að skóladagatali Fellaskóla fyrir skólaárið 2013-2014. Skóladagatalið hefur verið kynnt bæði meðal starfsmanna og í skólaráði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu fræðslunefndar samþykkir bæjarstjórn skóladagatalið.