Miðbær Egilsstaða

Málsnúmer 200812035

Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 88. fundur - 02.04.2020

Fram fóru umræður um miðbæ Egilsstaða.

Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs veltir fyrir sér eftirfarandi:
- Er búið að samþykkja tillögu að nýju miðbæjarskipulagi á Egilsstöðum?
- Er áætlað að hefja framkvæmdir við miðbæinn í sumar, þá sérstaklega framkvæmdir við Grenivang?
- Er búið að opna fyrir úthlutun á og/eða er búið að úthluta lóðum skv. þessari skipulagstillögu?

Samþykkt samhljóða.

Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 89. fundur - 07.05.2020

Inn á fjarfund ráðsins undir þessum lið kom Björn Ingimarsson, bæjarstjóri, og svaraði spurningum og vangaveltum ungmennaráðsmeðlima.

Ráðið þakkar bæjarstjóra fyrir greinargóð svör og skýringar.

Samþykkt samhljóða.