Félagsmálanefnd - 180

Málsnúmer 1912016F

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 307. fundur - 05.02.2020

Til máls tóku: Anna Alexandersdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi liði 9.3 og 9.6. Anna Alexandersdóttir, sem ræddi liði 9.6 og 9.3. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 9.6 og kynnti viðbót við fyrirliggjandi tillögu og Berglind Harpa Svavarsdóttir, sem ræddi lið 9.3.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með félagsmálanefnd og samþykkir að ganga til samstarfs og samninga við félags- og barnamálaráðuneytið ásamt dómsmálaráðuneytinu um forvarnarstarf í þágu barna og barnafjölskyldna í skilnaðarferli. Verklagið er í samhljómi við yfirlýsta stefnu og markmið Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs hvað varðar bætta stöðu barna, með snemmtækri íhlutun og forvarnarstarfi.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Í félagsmálanefnd var tekið fyrir erindi af bæjarstjórnarbekk þess efnis að afsláttarviðmið fasteignaskatts fyrir tekjulága elli- og örorkulífeyrisþega væru of lág.
    Um er að ræða heimild í tekjustofnalögum sem hvert sveitarfélag getur nýtt, samkvæmt sérstökum samþykktum reglum þar um og skal hver sveitarstjórn árlega ákveða þau tekjuviðmið og hámarksafslátt sem gildir viðkomandi ár.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með félagsmálanefnd og bendir á að ákvörðun um breytingar á viðmiðunarmörkum er tekin árlega, samhliða fjárhagsáætlunargerð og hefur því þegar verið samþykkt fyrir árið 2020.
    Bæjarstjórn vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2021.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.


  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.