Bókun fundar
Í félagsmálanefnd var fjallað um beiðni Bergsins, Headspace um styrk að upphæð 350.000,- kr. til starfsemi Bergsins, þar sem jafnframt er gefinn kostur á því að starfsmaður Bergsins komi austur og kynni starfsemina fyrir ungmennum svæðisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að tillögu félagsmálanefndar samþykkir bæjarstjórn að styrkja Bergið, Headspace um 100.000,- kr. af lið 0281, auk þess að greiða fyrir flugmiða starfsmanns Bergsins er kemur austur. Félagsmálanefnd vill beina því til Ungmennaráðs að standa að kynningu á starfsemi og þjónustu Bergsins í samráði við félagsmálastjóra og stjórnendur Bergsins Headspace.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.