Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með félagsmálanefnd Fljótsdalshéraðs og vekur athygli á að úthlutun og greiðslur rýma í dagdvöl eru ekki tengdar einstaklingum eins og þekkist t.d. innan fötlunargeirans, heldur miðast greiðslur við fjölda samþykktra rýma og fulla nýtingu þeirra. Þetta gerir það að verkum að sveitarfélögum er ekki fært annað en að hafa fleiri þjónustuþega en rými segja til um, til þess að fullnýta rými sem greitt er fyrir af hálfu Sjúkratrygginga Íslands. Þetta fyrirkomulag er til þess fallið að ýta kostnaði og margræddum gráum svæðum, yfir á sveitarfélögin, án lögmætra greiðslna frá ríkinu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fundargerðin lögð fram.