Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 76

Málsnúmer 1901005F

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 288. fundur - 06.02.2019

Til máls tóku: Björn Ingimarsson, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir sem bar fram fyrirspurn, ræddi lið 9.6 og lagði fram breytingartillögu. Stefán Bogi Sveinsson sem svaraði fyrirspurn og ræddi lið 9.6.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Afgreiðsla ungmennaráðs staðfest.
  • .3 201809102 Ungmennaráð Unicef
    Bókun fundar Ungmennaráð Unicef á Íslandi óskar eftir áhugasömum einstaklingum til að starfa með ráðinu.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráði og beinir auglýsingunni til allra 14-18 ára ungmenna á Fljótsdalshéraði og hvetur áhugasama til þess að sækja um til að vinna að réttindum barna og ungmenna.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • .4 201901092 Milljarður rís
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Bæjarstjórn fagnar áhuga ungmennaráðs á að taka þátt í skipulagi verkefnisins Milljarður rís og hvetur íbúa sveitarfélagsins til þátttöku í viðburðinum.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Fyrir liggur bókun bæjarráðs þar sem samþykkt er að óska eftir því við ungmennaráð að það geri tillögu um hvernig sveitarfélagið geti staðið að kynningu heimsmarkmiða S.Þ. fyrir íbúum og fyrirtækjum sveitarfélagsins. Jafnframt komi ungmennaráð með ábendingar um hvernig samþætta megi markmiðin og stefnumótun sveitarfélagsins almennt.

    Breytingartillaga Bjargar Björnsdóttur borin upp og samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

    Eftirfarandi tillaga, með áorðinni breytingu, lögð fram:
    Að tillögu ungmennaráðs Fljótsdalshéraðs samþykkir bæjarstjórn að stofnaður verði starfshópur um endurskoðun á núgildandi umhverfisstefnu sveitarfélagsins og að Heimsmarkmið Sameinuðuþjóðanna verði höfð að leiðarljósi við þá vinnu. Einnig verði horft til Heimsmarkmiðanna við endurskoðun aðalskipulags Fljótsdalshéraðs. Þess verði gætt að ungmennaráð eigi virka þátttöku í slíkum starfshópi.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • .7 201808169 Ungmennaþing 2019
    Bókun fundar Fyrir liggur að Ungmennaþing 2019 verður haldið 4. apríl 2019 og er heiti þess, Ég vil móta mína eigin framtíð.

    Lagt fram til kynningar að öðru leyti.
  • .8 201901060 Forvarnadagur 2019
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar
  • Bókun fundar Fyrir liggur tölvupóstur frá UMFÍ þar sem auglýst er ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði sem fer fram í apríl næstkomandi.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu ungmennaráðs samþykkir bæjarstjórn að tveir fulltrúar ráðsins, ásamt starfsmanni, fari á ráðstefnuna.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.