Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 70
Málsnúmer 1805024F
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn staðfestir kosningu Kristbjargar Mekkínar Helgadóttur sem varaformanns ungmennaráðs og óskar henni og fulltrúum ungmennaráðs velfarnaðar í störfum sínum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Fyrir fundi ungmennaráðs lá erindi frá Þjónustusamfélaginu á Héraði með hugmynd að fjölbreyttu útivistarsvæði á svæðinu milli Vilhjálmsvallar og Íþróttamiðstöðvar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráði og þakkar Þjónustusamfélaginu fyrir frumkvæðið. Bæjarstjórn beinir því til umhverfis- og framkvæmdanefndar að hugmyndin verði útfærð áfram hjá nefndinni með aðkomu ungmennaráðs og íþrótta- og tómstundanefndar.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í ungmennaráði voru lagðar fram hugmyndir að bættum Tjarnargarði frá nemendum 6. bekkjar Egilsstaðaskóla.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráði, þakkar fyrir hugmyndirnar og vísar málinu til umhverfis- og framkvæmdanefndar í samræmi við bókun undir lið 6.6.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í ungmennaráði voru lagðar fram til kynningar upplýsingar um Barnamenningarhátíð sem haldin verður á Austurlandi í september næstkomandi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráði og hvetur börn, ungmenni og aðra bæjarbúa og gesti til að sækja hátíðina.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Í vinnslu.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
-
Bókun fundar
Á fundi ungmennaráðs óskaði ráðið Íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum til hamingju með þær viðurkenningar sem sundlaugin hlaut í sumar. Sundlaugin var valin besti baðstaður á Austurlandi af tímaritinu The Reykjavík Grapevine og fékk að auki viðurkenningu frá Sjálfsbjörgu, landssambandi hreyfihamlaðra, fyrir gott aðgengi hreyfihamlaðra í tengslum við Ársverkefni 2017, Sundlaugar okkar allra.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með ungmennaráð og fagnar frábæru starfi í Íþróttamiðstöðinni og vonar að áfram verði haldið á sömu braut.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Að frumkvæði ungmennaráðs bendir bæjarstjórn nefndum og ráðum sveitarfélagsins á að leita umsagnar og álits ráðsins samkvæmt 4. gr. samþykkta fyrir ungmennaráð, en þar segir: Ungmennaráð tekur til umfjöllunar þau mál sem bæjarstjórn og nefndir sveitarfélagsins óska eftir hverju sinni. Þá er deildarstjórum og starfsfólki nefnda bent á að kynna ungmennaráð og hlutverk þess fyrir nýjum kjörnum fulltrúum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
Fundargerðin lögð fram.