Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 260
Málsnúmer 1804005F
-
Bókun fundar
Björn Ingimarsson, bæjarstjóri, mætti á fund fræðslunefndar undir þessum lið og kynnti niðurstöðu varðandi ráðningu skólastjóra Fellaskóla frá og með næsta skólaári, en gert er ráð fyrir að ganga til samninga við Þórhöllu Sigmundsdóttur um starfið.
Eftirfarandi tillaga lögð fram.
Bæjarstjórn tekur undir með fræðslunefnd og lýsir ánægju sinni með niðurstöðu málsins.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Vísað er til bókunar undir lið 5.3.
-
Bókun fundar
Á fundi fræðslunefndar kynnti formaður niðurstöður starfshóps þar sem eftirfarandi niðurstaða liggur fyrir: Starfshópur um málefni leikskóla á Fljótsdalshéraði leggur til við fræðslunefnd að ráðist verði í viðbyggingu við Hádegishöfða þannig að byggingin rúmi fullbúinn 3 deilda leikskóla.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með fræðslunefnd og þakkar starfshópnum fyrir hans vinnu. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að strax verði ráðist í nauðsynlegan undirbúning svo ofangreind tillaga geti náð fram að ganga. Lögð er áhersla á að tekið verði tillit til þeirra krafna sem gerðar eru í dag til hönnunar leikskólahúsnæðis.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
-
Bókun fundar
Mál í vinnslu.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Afgreiðsla fræðslunefndar staðfest.
-
Bókun fundar
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram: