Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs

248. fundur 21. mars 2017 kl. 17:00 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Davíð Þór Sigurðarson formaður
  • Aðalsteinn Ásmundarson aðalmaður
  • Soffía Sigurjónsdóttir aðalmaður
  • Anna Gunnhildur Ingvarsdóttir aðalmaður
  • Jón Björgvin Vernharðsson varamaður
  • Helga Guðmundsdóttir 0
Fundargerð ritaði: Helga Guðmundsdóttir fræðslustjóri
Áheyrnarfulltrúar grunnskóla, Sigurbjörg Hvönn Kristjánsdóttir og Elínborg Valsdóttir sátu fundinn undir liðum 1-4. Ruth Magnúsdóttir, skólastjóri Egilsstaðaskóla sat fundinn undir liðum 1-2 og lið 4 og Sverrir Gestsson, skólastjóri Fellaskóla, sat fundinn undir lið 3.

1.Sérfræðiþjónusta skóla

Málsnúmer 201703088

Ruth Magnúsdóttir, skólastjóri Egilsstaðaskóla, kynnti málefnið þar sem fram kom að í þeim fjölbreytta nemendahópi sem eru í grunnskólunum er rík þörf fyrir aðgengi að breiðum hópi fagfólks, ýmist í skólaþjónustunni eða í skólunum sjálfum.

Fræðslunefnd leggur áherslu á að stjórn Skólaskrifstofu Austurlands skoði af alvöru hvort ekki sé rétt að efla þann hóp fagfólks sem þar starfar til að tryggja þjónustu og auka fjölbreytni í stuðningi við starfsfólk skólanna.

Jafnframt ítrekar nefndin fyrri bókanir sínar um mikilvægi þess að heilbrigðisyfirvöld vinni markvisst að því að efla meðferðarúrræði fyrir börn sem þar eiga heima.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

2.Fundargerðir skólaráðs Egilsstaðaskóla

Málsnúmer 201209100

Lagt fram til kynningar.

3.Fundargerðir skólaráðs Fellaskóla

Málsnúmer 201203042

Lagt fram til kynningar.

4.PISA 2015

Málsnúmer 201701121

Fyrir liggja svör frá Menntamálastofnun og samkvæmt þeim eru niðurstöður PISA 2015 í Egilsstaðaskóla marktækar.

Lagt fram til kynningar.

5.Skýrsla fræðslustjóra

Málsnúmer 201108127

Til kynningar.

Fundi slitið.