Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

378. fundur 15. mars 2017 kl. 15:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson formaður
  • Anna Alexandersdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Stefán Bogi Sveinsson aðalmaður
  • Sigrún Blöndal varaformaður
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
  • Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri
Eftirtaldir fulltrúar sátu kynningu á árreikningi 2016 undir fundi bæjarráðs. Kynningin hófst kl. 14:00:
Anna Alexandersdóttir, Sigrún Blöndal, Árni Kristinsson, Stefán Bogi Sveinsson, Páll Sigvaldason, Hrund Erla Guðmundsdóttir, Adda Birna Hjálmarsdóttir og Gunnar Jónsson.

1.Ársreikningur 2016

Málsnúmer 201703043

Magnús Jónsson endurskoðandi KPMG, mætti á fundinn og kynnti ársreikning og drög að endurskoðunarskýrslu Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2016. Einnig bætti Guðlaugur Sæbjörnsson fjármálastjóri við upplýsingum þar sem á þurfti að halda. Öllum bæjarfulltrúum og fulltrúum nefnda, stóð til boða að sitja kynningu endurskoðanda á ársreikningum.

Endurskoðandi og fjármálastjóri svöruðu einnig fyrirspurnum fundarmanna varðandi ýmsa þætti ársreikningsins. Að lokinni kynningu var þeim þökkuð koman og greinargóðar upplýsingar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningi og drögum að endurskoðendaskýrslu fyrir árið 2016, til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Jafnframt er fjármálastjóra falið að senda ársreikninginn til Kauphallarinnar til birtingar þar, að lokinni áritun bæjarráðs og bæjarstjóra, eins og reglur segja til um.

Fundi slitið.