Bæjarráð Fljótsdalshéraðs

253. fundur 02. apríl 2014 kl. 14:30 í fundarsal bæjarstjórnar
Nefndarmenn
  • Gunnar Jónsson formaður
  • Stefán Bogi Sveinsson varaformaður
  • Sigrún Blöndal aðalmaður
  • Karl Sigfús Lauritzson áheyrnarfulltrúi
  • Björn Ingimarsson bæjarstjóri
  • Stefán Snædal Bragason skrifstofu- og starfsmannastjóri
Fundargerð ritaði: Stefán Bragason skrifstofustjóri

1.Ársreikningur 2013

Málsnúmer 201403157

Magnús Jónsson og Friðrik Einarsson endurskoðendur KPMG, mættu á fundinn og kynntu ársreiking og endurskoðunarskýrslu Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013. Öllum bæjarfulltrúum stóð til boða að sitja fundinn undir kynningu Magnúsar.
Auk aðalmanna í bæjarráði sat Eyrún Arnardóttir megin hluta kynningarinnar.

Jafnframt kynningu svöruðu Magnús og Friðrik spurningnum fundarmanna varðandi ársreikninginn og endurskoðunarskýrsluna.

Að lokinni kynningu, var þeim þökkuð koman og greinargóðar upplýsingar.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningi og endurskoðunarskýrslu Fljótsdalshéraðs fyrir árið 2013 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Jafnframt er fjármálastjóra falið að senda umrædd gögn strax til Kauphallarinnar til birtingar þar, að lokinni áritun bæjarráðs og bæjarstjóra, eins og reglur segja til um.

Fundi slitið.