Tónlistarskólagjöld, erindi frá foreldri

Málsnúmer 202008104

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 291. fundur - 25.08.2020

Fræðslustjóri kynnti erindið sem varðar beiðni um að systkinaafsláttur verði víkkaður út og taki til allrar fjölskyldunnar.

Fræðslunefnd þakkar erindið og vísar ákvörðun um málið til endanlegrar afgreiðslu fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.