Umsókn um leyfi til að halda torfærukeppni í Mýnesgrúsum

Málsnúmer 202006050

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 518. fundur - 22.06.2020

Lögð fram umsókn dagsett 10. júní 2020 frá Akstursíþróttaklúbbnum Start um að halda torfærukeppni í Mýnesgrúsum 4. júlí 2020.

Bæjarráð, með vísan til fullnaðarafgreiðsluheimildar sem veitt var á fundi bæjarstjórnar 18. júní 2020, samþykkir að veita umbeðið leyfi með þeim fyrirvara að allra nauðsynlegra leyfa og trygginga verði aflað.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.