Samningur við Héraðsskjalasafn Austfirðinga um sérverkefni unnin á árinu 2020

Málsnúmer 202004117

Atvinnu- og menningarnefnd - 103. fundur - 20.04.2020

Fyrir liggja drög að samningi við Héraðsskjalasafn Austfirðinga vegna vinnu safnsins fyrir sveitarfélagið m.a. við söfnun, flokkun og skráningu skjala frá fyrrum sveitarfélögum sem nú mynda Fljótsdalshérað.

Atvinnu- og menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leiti fyrirliggjandi samningsdrög.

Samþykkt samhljóða með nafnakalli.