Áskorun á bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 202003125

Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 88. fundur - 02.04.2020

Ungmennaráð hvetur bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs til að kanna alla möguleika til þess að styðja við bakið á heimilum og fyrirtækjum á þessum fordæmalausu tímum, til að mynda með því að auka fjölbreytni atvinnumöguleika fyrir ungt fólk og með því að skoða tímabundna lækkun eða niðurfellingu skatta og gjalda.

Samþykkt samhljóða.