Meistaraflokkur körfuknattleiksdeildar Hattar í Dominosdeild karla 2020-2021

Málsnúmer 202003083

Íþrótta- og tómstundanefnd - 61. fundur - 26.03.2020

Fyrir liggur að meistaraflokkur körfuknattleiksdeildar Hattar mun leika í Dominos deild karla 2020-2021.

Íþrótta- og tómstundanefnd óskar leikmönnum, stjórn og þjálfara liðsins innilega til hamingju með árangurinn og hlakkar til að fylgjast með liðinu í Dominos deild næsta vetur.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.