Hringleiðin Egilsstaðir, Jökuldalur, Kárahnjúkar, Fljótsdalur, Egilsstaðir

Málsnúmer 202001019

Atvinnu- og menningarnefnd - 97. fundur - 20.01.2020

Fyrir liggur tölvupóstur dagsettur 3. janúar 2020 frá Steingrími Karlssyni þar sem reifaðar eru hugmyndir um greiðfæra hringleið frá Egilsstöðum um Jökuldal að Kárahnjúkum og þaðan niður í Fljótsdal til Egilsstaða. En með þessari leið mætti tengja saman nokkrar af helstu náttúruperlum svæðisins og gera mjög áhugaverða ferðaleið.

Atvinnu- og menningarnefnd tekur undir þetta og leggur til við bæjarráð að málið verði tekið upp við hagsmunaaðila, Vegagerðina og þingmenn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.