Sameiginlegt erindi frá foreldraráðum Hádegishöfða og Tjarnarskógar

Málsnúmer 201912031

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 283. fundur - 10.12.2019

Lagt fram erindi frá foreldraráðum leikskólanna Tjarnarskógar og Hádegishöfða þar sem hvatt er til að í sameinuðu sveitarfélagi verði ráðinn leikskólafulltrúi til starfa. Fræðslunefnd vísar erindinu til afgreiðslu í undirbúningsnefnd vegna sameiningar sveitarfélaganna Fljótsdalshéraðs, Borgarfjarðar eystri, Seyðisfjarðar og Djúpavogshrepps.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.