Beiðni um yfirlýsingu/meðmæli sveitarstjórnar vegna kaupa á bújörð

Málsnúmer 201912005

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 493. fundur - 09.12.2019

Fyrir fundinum liggja drög að yfirlýsingu vegna fyrirhugaðra kaupa ábúanda á Rauðholti á jörðinni.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til fullnaðarafgreiðsluumboðs mála sem bæjarstjórn veitti bæjarráði á fundi sínum 4. des. sl, samþykkir bæjarráð að veita jákvæða yfirlýsingu varðandi möguleg kaup ábúanda á jörðinni Rauðholti.
Bæjarstjóra falið að ganga frá endanlegri yfirlýsingu á grundvelli framlagðra draga.