Fundur bæjarráða Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs 26. ágúst 2019

Málsnúmer 201908189

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 480. fundur - 02.09.2019

Lögð fram fundargerð sameiginlegs fundar bæjarráða Seyðisfjarðar og Fljótsdalshéraðs sem haldinn var 26. ágúst.

Í framhaldi fundarins voru gerðar ályktanir annars vegar um Fjarðarheiðargöng og hins vegar um innanlandsflug og verða þær m.a. birtar á heimasíðu Fljótsdalshéraðs.