Starfshópur um aukið samstarf Fellaskóla, Egilsstaðaskóla og Brúarásskóla

Málsnúmer 201906040

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 277. fundur - 12.06.2019

Fræðslunefnd fer þess á leit við grunnskólastjórnendur að þeir skoði frekari möguleika á samstarfi skólanna með það að markmiði að nýta sem best aðstöðu í skólunum í þágu allra grunnskólanemenda í sveitarfélaginu. Kallaðir verði til þeir aðilar skólasamfélagsins sem málin kunna að varða.

Fræðslustjóra falið að leiða starf hópsins.

Fræðslunefnd óskar eftir að tillögur frá hópnum verði kynntar fyrir nefndinni fyrir lok haustannar 2019.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.