Áskorun um að gjalda varhug við áform um virkjanaframkvæmdir

Málsnúmer 201904185

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 473. fundur - 14.06.2019

Lögð fram bókun frá sveitarstjórn Fljótsdalshrepps vegna erindis frá Náttúruverndarsamtökum Austurlands, þar sem fram kemur að sveitarstjórn lýsir yfir áhuga að eiga samtal við Djúpavogshrepp og Fljótsdalshérað um sameiginlega sýn á Hraunasvæðið, með tilliti til verndunar eða nýtingar.
Bæjarráð lýsir sig reiðubúið til að taka þetta samtal verði eftir því leitað.