Beiðni um umsögn - Umsókn um rekstrarleyfi til veitingu veitingar í flokki II, Nielsen

Málsnúmer 201903157

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 293. fundur - 17.04.2019

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu veitinga í flokki II í Nielsen Egilsstöðum. Umsækjandi er SK veitingar ehf. Kári Þorsteinsson.

Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa. Umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands liggur ekki fyrir, en verður send um leið og hún berst.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, veitir bæjarstjórn jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Bæjarstjórn bendir á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.