Umsókn um breytingu á rekstrarleyfi til veitingu veitinga í flokki III - Askur Taproom

Málsnúmer 201903031

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 292. fundur - 03.04.2019

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um breytingu á rekstrarleyfi fyrir sölu veitinga í flokki III að Fagradalsbraut 25. Umsækjandi er Askur Taproom, Friðrik Bjartur Magnússon.

Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa fyrir allt að 120 gesti. Einnig jákvæð umsögn frá Heilbrigðiseftirliti Austurlands.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til I . mgr. 12. gr. og I . tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, veitir bæjarstjórn jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Bæjarstjórn bendir á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.