Beiðni um styrk v/ landsþings Slysavarnarfélagsins Landsbjargar á Egilsstöðum

Málsnúmer 201901061

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 454. fundur - 21.01.2019

Bæjarráð samþykkir að styrkja Landsbjörgu sem nemur húsaleigu í íþróttamiðstöðinni á Egilsstöðum vegna landsþings sem haldið verður 17. og 18. maí. Bæjarstjóra falið að útfæra styrkinn í samráði við forstöðumann íþróttamiðstöðvarinnar.