Umsókn um byggingarleyfi, breytt notkun á Fagradalsbraut 9

Málsnúmer 201901031

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 104. fundur - 09.01.2019

Fyrir hönd Egilsstaðahússins ehf kt. 700198-2869 óskum við eftir að fá leyfi til að breyta eign okkar að Fagradalsbraut 9, 010101 fastanúmer 224-3742 í íbúðarhúsnæði.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd leggur til við bæjarstjórn að heimilt verði að breyta notkun í íbúðarhúsnæði, nefndin leggur til að breyting fái málsmeðferð í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr 123/2010.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.