Fyrirspurn til umhverfis- og framkvæmdanefndar, ástand gatna á Eiðum

Málsnúmer 201811051

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 101. fundur - 14.11.2018

Erindi frá Þórhalli Pálssyni þar sem bent er á ástand gatnanna Eiðavalla og Vallnaholts á Eiðum.

Umhverfis- og framkvæmdanefndar þakkar ábendinguna og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að setja áðurnefndar götur á lista yfir viðhald gatna.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.