Áætlun um gerð göngu- og hjólreiðastíga í sveitarfélaginu

Málsnúmer 201809062

Íþrótta- og tómstundanefnd - 45. fundur - 27.09.2018

Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að ráðist verði í gerð framtíðaráætlunar hvað varðar uppbyggingu og gerð göngu- og hjólastíga í sveitarfélaginu í samráði við nefndina. Um yrði að ræða stíga bæði innan þéttbýlis og utan þess.

Þá hvetur nefndin umhverfis- og framkvæmdanefnd til þess að samhliða framkvæmdum sé haft í huga uppbygging/lagfæring á hjólreiða- og göngustígum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.