Ósk um breytingu á deiliskipulagi Hamragerði 3, 5 og 7

Málsnúmer 201808028

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 95. fundur - 15.08.2018

Umhverfis- og framkvæmdanefnd hafnar erindinu en ítrekar að þegar til framkvæmda verður gengið á þessum stað verði gætt að því að frágangur á svæðinu verði í samræmi við gildandi skipulag þannig að gróður dempi hugsanlega hljóðmengun frá vellinum en jafnframt verði rask á svæðinu eins lítið og mögulegt er.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.