Umsókn um breytingu á leyfi fyrir gistiheimili /Hótel Eiðar

Málsnúmer 201806089

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 432. fundur - 09.07.2018

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki IV að Eiðum. Umsækjandi er Hótel Eiðar/Eiðagisting.

Fyrir liggur umsögn byggingarfulltrúa.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Með vísan til umsagnar byggingarfulltrúa samþykkir bæjarráð að leggja til við leyfisveitanda að afgreiðslu málsins verði frestað þangað til fullnægjandi gögn liggja fyrir.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu