Fjölmenningarhátíð, styrkumsókn

Málsnúmer 201805077

Atvinnu- og menningarnefnd - 70. fundur - 22.05.2018

Fyrir liggur styrkumsókn frá Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs vegna Fjölmenningarhátíðar sem haldin er í Sláturhúsinu menningarsetri 21. maí 2018.

Atvinnu og menningarnefnd leggur til að verkefnið verði styrkt um kr. 50.000 sem tekið verði af lið 0574.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.