Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar - Eyjólfsstaðaskógur lóð 20 - Huldusteinn

Málsnúmer 201805069

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 432. fundur - 09.07.2018

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir sölu gistingar í flokki II að Eyjólfsstaðaskógi lóð 20. Umsækjandi er Viator ehf, Pétur Óskarsson.

Fyrir liggur umsögn byggingarfulltrúa.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð bendir á þau atriði sem fram koma í umsögn byggingarfulltrúa sem snúa að skipulagi og húsnæði.

Eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu