Beiðni um viðbótarframlag vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð/Minjasafn

Málsnúmer 201803033

Atvinnu- og menningarnefnd - 65. fundur - 12.03.2018

Fyrir liggur bréf, dagsett 2. mars 2018, frá Minjasafni Austurlands, þar sem óskað er eftir að eigendur safnsins leggi Minjasafninu til fjárframlag til að standa straum af kostnaði vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð. Hlutdeild Fljótsdalshéraðs í þeim kostnaði er 1.9 milljónir.

Atvinnu- og menningarnefnd vísar erindinu til bæjarráðs til afgreiðslu enda rúmist þessi upphæð ekki innan fjárhagsramma málaflokksins í ár.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.