Samningur um afnot á fasteignum milli Hattar og Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 201802139

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 86. fundur - 28.02.2018

Fyrir nefndinni liggur samningur milli Fljótsdalshéraðs og Hattar um afnot af íbúð 206 í Útgarði 7.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir framlagðan samning.

Nefndin óskar eftir því að yfirmaður eignasjóðs kynni fyrir nefndinni framvindu samningsins á samningstímanum.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.