Aðstaða fyrir leikfélagið; Bæjarstjórnarbekkurinn 16.12.2017

Málsnúmer 201802108

Atvinnu- og menningarnefnd - 64. fundur - 26.02.2018

Lagt fram erindi um aðstöðu fyrir Leikfélag Fljótsdalshéraðs sem fram var borið á bæjarstjórnarbekknum sem haldinn var á Barramarkaðnum 16. desember 2017. Erindinu vísað til atvinnu- og menningarnefndar á fundi bæjarráðs 8. janúar 2018.

Atvinnu- og menningarnefnd bendir á að leikfélagið hefur aðstöðu á vegum sveitarfélagsins til 2019 í Fellabæ, einnig stendur Sláturhúsið menningarsetur opið fyrir leikfélagið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.