Spurningar til stjórnmálaflokka í aðdraganda Alþingiskosninga 2017.

Málsnúmer 201710027

Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs - 61. fundur - 19.10.2017

Ungmennaráð Fljótsdalshéraðs hvetur ungt fólk með kosningarétt til að nýta hann í komandi Alþingiskosningum.

Þá felur ráðið starfsmanni að senda spurningalista til allra framboða í Norðausturkjördæmi og koma svörum á heimasíðu sveitarfélagsins og Facebooksíðu Ungmennaráðs til upplýsingar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.