Beiðni um styrk til að setja upp aðstöðu í heimavistarbyggingu ME

Málsnúmer 201710004

Atvinnu- og menningarnefnd - 57. fundur - 23.10.2017

Fyrir liggur umsókn um styrk frá Nemendafélagi Menntaskólans á Egilsstöðum vegna uppbyggingar á aðstöðu til æfingar á tónlist, í heimavistarbyggingu skólans.

Atvinnu- og menningarnefnd hafnar erindinu en vekur athygli á að Sláturhúsið hefur yfir að ráða aðstöðu til æfinga og hljóðupptöku sem stendur menntskælingum til boða sem og öðru ungu fólki.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.