Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar í flokki II - Gistiheimili. Lagarfell 3

Málsnúmer 201707038

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 266. fundur - 06.12.2017

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir gistingu í flokki II að Lagarfelli 3 Fellabæ Fljótsdalshéraði. Umsækjendur eru Sigríður Sigmundsdóttir og Þór Ragnarsson.

Fyrir liggur jákvæð umsögn byggingarfulltrúa og heilbrigðiseftirlits.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.
Bæjarstjórn bendir á að eldvarnareftirlitið og vinnueftirlitið skila sínum umsögnum beint til sýslumanns.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.