Umsókn um tækifærisleyfi/lokað einkasamkvæmi fyrir nemendur ME og gesti þeirra

Málsnúmer 201704086

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 256. fundur - 03.05.2017

Fyrir liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Austurlandi vegna umsóknar um tímabundið tækifærisleyfi vegna einkasamkvæmis Menntaskólans á Egilsstöðum, sem haldið verður í Café Egilsstaðir 05.05. næstkomandi.

Fyrir liggur jákvæð umsögn frá byggingarfulltrúa og Heilbrigðiseftirliti.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn veitir jákvæða umsögn og staðfestir jafnframt að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsóknin lýtur að, sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.