Ábúð á ríkisjörðum

Málsnúmer 201704027

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 382. fundur - 10.04.2017

Lagt fram bréf frá ábúendum á Unaósi, varðandi áframhaldandi ábúð á jörðinni og drátt á því að hún sé auglýst laus til ábúðar.

Í framhaldinu ræddi bæjarráð ábúð á ríkisjörðum í sveitarfélaginu og tregðu ríkisvaldsins til að auglýsa aftur jarðir til ábúðar sem sagt hefur verið lausum.
Bæjarráð tekur heilshugar undir með bréfriturum og ítrekar fyrri afstöðu sína í málefnum ríkisjarða sem birtist meðal annars í bókun bæjarstjórnar Fljótsdalshéraðs frá 15. júní 2016 og var svohljóðandi:

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs beinir því til ríkisvaldsins að leita allra leiða til þess að ríkisjarðir séu setnar og tryggja að samfella sé í búrekstri þeirra jarða sem hafa verið í nýtingu.
Í ljósi stöðu dreifbýlis Fljótsdalshéraðs er það sveitarfélaginu sérstaklega mikilvægt að þessar kostajarðir séu setnar.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir.