Umsókn um styrk vegna starfsemi Leikfélags Fljótsdalshéraðs

Málsnúmer 201704026

Atvinnu- og menningarnefnd - 51. fundur - 10.04.2017

Fyrir liggur umsókn um styrk frá Leikfélagi Fljótsdalshéraðs vegna uppsetningar á leikverki sem sýnt verðu í maí 2017 og vegna undirbúnings á sviðsverki sem fyrirhugað er til sýningar í mars 2018.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að leikfélagið verði styrkt um kr. 450.000 sem tekið verði af lið 0581.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.