Umsókn um styrk vegna Austfjarðatrölls 2017

Málsnúmer 201703170

Íþrótta- og tómstundanefnd - 30. fundur - 26.04.2017

Fyrir liggur tölvupóstur frá Magnúsi Ver Magnússyni, dagsettur 27. mars 2017, þar sem óskað er eftir styrk til að halda Austfjarðatröllið í lok ágúst 2017. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að Austfjarðatröllið verði styrkt um kr. 50.000 sem tekið verði af lið 689, enda er þá gert ráð fyrir að hluti keppninnar fari fram í sveitarfélaginu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.