Áætlun um uppbyggingu á þjónustu fyrir fatlað fólk á Fljótsdalshéraði 2017-2021

Málsnúmer 201703128

Félagsmálanefnd - 153. fundur - 29.03.2017

Endurskoðuð áætlun frá ágúst 2015 um uppbyggingu á þjónustu fyrir fatlað fólk á Fljótsdalshéraði lögð fram til kynningar. Fram kom á fundinum að sveitarfélagið hafi þegar óskað eftir samstarfi við Brynju hússjóð og Öryrkjabandalag Íslands um samtal varðandi uppbyggingu á húsnæði fyrir ungt fatlað fólk á svæðinu. Nefndin leggur áherslu á að áfram verði leitað lausna á húsnæðisúrræðum fyrir þennan hóp fólks.